

Lauk sömuleiðis um helgina bókinni Never let me go eftir Kazuo Ishiguro. Höfundur sem er ótrúlega lunkinn við að skrifa texta með þunga, ofurþunga undiröldu.
Annars þarf ég að athuga hvort ég sé nokkuð að brjóta höfundarrétt með því að birta kápumyndir. Einhver upplýsi mig sem veit betur!! Verandi rótandi í þannig rétti alla daga þá hef ég kannski fengið snefil af virðingu fyrir honum.
3 ummæli:
Nú þekki ég ekki lögin um höfundarrétt en þar sem þú mátt birta tilvitnanir innan gæsalappa- og ef þú getur höfundar (samanber leikritið ,,Hannes og Halldór") get ég ekki ímyndað mér að birting á bókarkápum þar sem nafn höfundar kemur skýrt fram sé brot á höfundarréttarlögum. Þú ættir frekar að fara fram á greiðslu fyrir auglýsingu!
Ishiguro er snillingur. Hefurðu lesið An Artist of the Floating World eða The Unconsoled? Sérstaklega þá síðarnefndu, maður fyllist lotningu við að lesa þessa snilld!
Takk fyrir þetta Hafrún, þar komstu með góðan punkt!
Ég þarf að skoða þessar bækur Arngrímur, hef bara lesið Dreggjar dagsins hingað til!
Skrifa ummæli