þriðjudagur, júlí 31, 2007

Fyrsti ritdómurinn

kominn í hús. Rakst á þennan dóm Gauta Kristmannssonar á nýju bókina mína (best að opna krækjuna í Explorer).

Fjallvegir í Reykjavík komnir í flestar bókabúðir á 1900 kr. Ég sel þó beint á 1500 kr. Þeir sem vilja fá sent eintak í pósti geta lagt inn á mig og sent mér heimilisfang sitt á sigurlinbjarney@gmail.com - slíkt eintak myndi kosta 1600 kr.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ elsku Bjarney,

Innilega til hamingju með frábæran ritdóm. Ég hlakka til að fá mér bókina. Sjáumst þann ellefta.

Bestu kveðjur, Nanna Guðný.

Hafrún sagði...

Sammála síðasta ræðumanni. Ég fæ eintak hjá þér við fyrsta tækifæri. Hlakka til að lesa hana!

Nafnlaus sagði...

Hæ - til hamingju með ritdóminn sem var alveg frábær eins og bókin þín - takk aftur fyrir Kjalvegsgönguna, kv Solla

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með útgáfu bókarinnar og glæsilegan ritdóm. Hlakka til að lesa hana, verð að fá eintak hjá þér við fyrsta tækifæri.

Kveðja Bryndís