þriðjudagur, maí 13, 2008

Hinn mikli leikhúsmánuður

Á sunnudaginn fór ég á leikritið Mammamamma og skemmti mér mjög vel. Flott leikrit fyrir alla sem eru mömmur, eiga eða hafa einhverntímann átt mömmu. Á mánudaginn var haldið á Skoppu og skrítlu með snúlluna og um næstu helgu skundum við mæðgurnar á Maximús Músíkús. Í lok mánaðar fer ég síðan á ,,Laddi 6tugur".

Annars er ennþá mikil hamingju í bænum þar sem öllum prófum lauk 2. maí og nýt þess að velja sjálf þær bækur sem ég les.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú ert aldeilis menningarleg, fyndið að þetta kemur allt í sama mánuðinum. Takk fyrir síðast, og vonandi skemmtuð þið mægður ykkur vel á Skoppu og Skrítlu - solla