föstudagur, júlí 13, 2007

Í nótt ætla ég að forðast ískrið í hliðinu og klifra yfir girðinguna


er titill á sögu sem (mér til mikillar undrunar, en það er önnur saga) er birt í kilju með nýjasta Mannlífi. Aðalsöguhetjan er gömul kona á þvælingi um landið, á flótta undan einhverju óræðu. Einu sinni áttu bréfin hennar heima inni í ólokinni skáldsögu sem grotnar nú í skúffum.

Annars eru Fjallvegir komnir í hús og dreifast um bókabúðir eftir helgina. Fyrstir koma, fyrstir fá. Seinir koma, seinir fá þó!

2 ummæli:

Hafrún sagði...

Þá er ekki annað en að stefna á helgarfrí og fara í bókabúð.

bjarney sagði...

Út úr búð kostar bókin 1900 kr. en ég sel hana beint á 1500 kr. - ef þú ert ekki þegar búin að kaupa eintak þá er ódýrara að fá eitt beint frá mér :-)