föstudagur, júní 06, 2008

Fyrir stuttu

dreymdi mig draum um að mig dreymdi draum um dagsetningu. Í draumnum (inni í draumnum) dreymdi mig dagsetningu fram í tímann og vísbendingarnar voru samúðarkort. Þegar ég vaknaði varð ég óendanlega glöð yfir því að draumurinn hafði bara verið draumur.

2 ummæli:

Gunna Lísa sagði...

Það er dáldið óhugnarlegt, manstu dagsetninguna?

bjarney sagði...

Hæ litla frænka!! Gaman að sjá bloggið þitt! Ég ætlaði nú ekki að segja dagsetninguna en læt það bara flakka, 24. mars - hvað sem það þýðir nú.